Fimmtudagur, 20. desember 2007
Fara karlar á túr?
Fræg er sú mýta að við stelpur, konur, kellingar - hvað sem við kjósum að kalla okkur (þessar með brjóstin) verðum einu sinni í mánuði svo geðstyggar og andstyggilegar að við séum allt að því réttdræpar. Þetta er kannski ekkert ofsagt um allar, ég veit það ekki, en sjálf skipti ég ekki meira skapi þá en annars - þó mér þyki ágætt að nota ástandið til þess að réttlæta aukið sælgætisát. Það er þó helst vegna þess að þeim hugmyndum hefur verið komið inn í kollinn á mér, að þetta sé tilfellið, og sannast sagna er ég nú bara alltaf að leita að afsökunum fyrir að mega sækja í auknu mæli í góðgæti til að troða í andlitið á mér - einmitt einn helsti kostur jólanna sem að öðru leiti eru farin að svipa mjög til skrípahátíðar. En hvað um það.
Þegar kona er viðskotaill og með afbrygðum erfið í samskiptum, þá sérstaklega ef hún á ekki hef til að vera það, þá er gripið til þeirrar afsökunar að hún sé á túr - eiginlega bara alltaf. Sumum konum finnst þetta niðrandi og óþolandi á meðan aðrar eru því fegnar að geta verið tussur í skugga einhvers sem enginn ræður yfir. En það sem brennur á mér er spurningin um hvað það er sem veldur þegar karlmenn haga sér svona?
Þegar menn sem alla jafna eru geðgóðir og skemmtilegir breytast í ristastór börn; fara í fýlu og ákveða að hundsa allt sem fyrir þeim verður vegna þess að allt er ansalegt og heimurinn er ömurlegur. Allir geta dottið niður í einhvern svona píslarvott stöku sinnum en svo sér fólk oftast að sér og fer að haga sér eðlilega á ný. En þegar svona ástand varir í viku þá fer maður að spyrja spurninga.
Geðvonskan birtist eins og skrúfað væri frá krana og á sama hátt var hún bara horfin einn daginn. Maðurinn var aftur broshýr og þægilegur. Var hann á túr? Er til einhver hliðstæða tíðarhrings fyrir karlmenn eða verða þeir bara, sumir, að vera óskiljanlega snúnir í umgengni og kalla á mun meiri varkárni suma daga en aðra?
Maður spyr sig.
Um bloggið
Mæja McFabulous
Tenglar
Dásemdar fólk
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Snilldar pæling!
Guðbjörg 20.12.2007 kl. 21:58
Sæl vertu,
kannastu við hugtakið ,,brundfyllisgremja" ? Mér skilst að Hlíf Agnarsdóttir hafi dottið niður á þetta frábæra orð til að lýsa því ástandi þegar karlmenn eru argir, viðskotaillir, uppstökkir og almennt gramir. Finnst nú ekki við hæfi að segja slíkt ástand sambærilegt við tíðahring kvenna. Sumir menn þjást af brundfyllisgremjunni leeeeengi... Stundum held ég að karlar hafi sjúkdómsgert tíðir kvenna til að geta sannfært sig ( og okkur ) um að við séum ÁVALLT á valdi hormónanna!! Kv. KSK
Kristín Sólveig 21.12.2007 kl. 14:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.