Sunnudagur, 9. desember 2007
26
"Elsku stóri bróðir, til hamingju með afmælið. Ég vona nú að þetta verði árið sem þú ferð loksins að vinna í því að verða þér út um fjölskyldu því ef ekki núna þá fer það að verða allt of seint"
Þessa hugljúfu kveðju sendi ég Magga bróður mínum fyrir nokkrum árum, aðeins fáeinum mánuðum áður en hann klófesti stúlkuna sem nú er eiginkona hans. Hann var tuttugu og fimm ára og nú finn ég svo mætavel þunga þessara orða.
Á föstudaginn var 341. dagur ársins, það voru 66 ár frá árásinni á pearl harbour og líka tuttugu og sex ár frá því að ég fæddist. Ég er því búin að loka sjálfa mig inni í sjálfsköpuðum tímaramma sem ég ómeðvitað setti mér fyrir rúmum 13 árum síðan - enda fannst mér nú eiginlega óhugsandi á þeim tíma að nokkur almennileg manneskja gæti enn verið að dingla sér eftir 25 ára aldurinn.
25 ára konur áttu menn, hús, jeppa og sennilega fimm til sex krakka. Þær máttu reykja og áttu að labba um á háum hælum með flugfreyjutösku í eftirdragi og með eldrauðan varalit út um allt andlit. Þær stunduðu saumaklúbba og bökuðu líka á hverjum degi - eftir að þær komu heim úr fínu vinnunni sinni sem þær voru búnar að hafa í mörg ár. Börnin þeirra fjölmörgu voru alltaf í fallegum heimasaumuðum fötum og peysum, húfum og vettlingum sem konurnar prjónuðu. Þær elduðu fallegar máltíðir á hverjum degi og lögðu á borð yfir heklaðan dúk sem þær gerðu vitaskuld sjálfar.
25 ára konur voru fullorðnar og virðulegar.
25 ára gömul ég var allt öðruvísi en myndin sem ég hafði málað sem púki.
25 ára gömul ég bjó í leiguhúsnæði í Norður Írlandi, var einhleyp, barnlaus og búin að missa bílinn minn í eftirminnilegu atviki sem leiddi til handtöku á erlendri grundu. Á kennderíi prófaði ég einu sinni að reykja og faldi mig á meðan í skít og skömm í því sem ég rembdist við að staulast um á hælum. Á endanum datt ég vitaskuld með beran bossann upp í loftið þar sem ég hafði gleymt að fara í brók - 25 ára konur áttu ekkert að gera það.
25 ára gömul blótaði ég líka þannig að sönnum víkingi hefði verið sómi af og ropaði svo að víða í austurlöndum hefði ég talist til þjóðhöfðingja. Ég var ekkert fullorðin og ekkert virðuleg.
Kannski 26 sé nýja 25 - hver veit nema þetta komi allt á árinu, en einhvernvegin er ég full efasemda um það. Mér finnst líklegt að 26 ára verði ég enn bara eitthvað að dingla mér, jafn fjærri því að vita hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór og jafn fjærri því að vera einhver sómasamleg dama - en lengi má vona.
Um bloggið
Mæja McFabulous
Tenglar
Dásemdar fólk
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Byrjum á byrjuninni. Til hamingju með nýju flottu síðuna þín Mæja mín!!
Er ekki frá því að ég mun hoppa af gleði - sit í augnablikin, en kemur í ljós hvað gerist á eftir...
Aldurspaldur segi ég nú bara!! Þú ert bara töff!! Maður á að lifa SÍNU lífi eftir SÍNU eigin nefi, ekki eftir því hvað staðallinn í samfélaginu segir... :)
Síðan er maður svo vitlaus þegar maður er krakki, ég hélt að 2010 myndum við vera á flugbílum og allt voða geim-vænt... Finnst ekki líklegt að það eigi eftir að gerast..
Vera 9.12.2007 kl. 17:48
Ekki örvænta!! Sjáðu bara mig, ekki deginum eldri en 25 ára og enn að dingla mér
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 10.12.2007 kl. 01:32
Sæl og blessuð María Elísabet
Já það gaman að vita til þess að ég þessi dannaði í okkar fjölsk.En í flestum öðrum fjölsk þætti ég dálítið brenglaður.
Kannski er bara best að þú verðir áfram á djamminu því ekki getur Belli það sökum aldurs og hárleysis svo hef ég aldrei verið fyrir sopann ekki frekar en Elísa við verðum að eiga okkar fulltrúa á þessum vígstöðum ég er stoltur af því að það skuli vera þú.
þetta er frekar dapur staða fyrir Kobba Ragg og Betu Mæju að litla pðrinsessann þeirra skuli ekki ganga út
kv Magnús Már
Magnús Már Jakobsson 19.12.2007 kl. 12:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.