Marty Hearty - BBC Gullmoli útaf fyrir sig

Ég var að tala við góðan vin minn Marty Hearty í gær, enda langt síðan ég hafði fengið af honum fréttir.

Marty er afar geðþekkur/sjúkur ungur maður sem ég var svo heppin martinheartyað kynnast á námsárunum.

Hann er fæddur og uppalinn nærri landamærum lýðveldisins og Norður Írlands og birtist manni sem persónugerving þeirrar togstreiu sem þar ríkir. Á flestan hátt er hann þó bara gangandi skopmynd alls þess sem maður hefur ímyndað sér um írskar fyllibyttur - fyndnasti maður sem ég þekki en jafnframt einn sá ljúfasti. Mér þykir mjög vænt um kauða og hef, þrátt fyrir oft og tíðum skuggalegt líferni hans, óbilandi trú á honum. Ég var því himinlifandi þegar hann sagði mér að BBC hafi komist í stutt kvikmyndaverkefni sem hann gerði og keypt það. Þeir létu þó ekki staðar numið þar og hafa boðið honum vinnu við að skrifa fyrir sig gamanþætti. Samningar standa enn yfir og þykir mér spennandi að vita um framhaldið.

 

Hér sjáið þið áhrifamikið myndbandið sem opnað hefur augu mín fyrir þeim hrottaskap sem á sér stað í fótbolta.

http://www.bbc.co.uk/northernireland/milkcup/?vid=uuc_balls


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mátt endilega hrósa þessum vini þínum næst þegar þú heyrir í honum. Horfði á videoið hans og þetta er hrein og klár snilld.....sérstaklega þegar sést verið að halda boltum á lofti og hljóðin sem eiga að vera að koma frá þeim heyrast:) Sakna þess líka að heyra Mæsu hlátur:o) Knús knús í Moggahöll:)

Karitas 21.8.2008 kl. 23:17

2 identicon

þetta er alger snilld!!! geturu ekki bara gifst stráksa og lifað hamingjusömu fjölmiðla lífi með honum það sem eftir er???:) nei ok.... samt gaman að þessu:) heyrumst klikkhaus

Stebba 26.8.2008 kl. 16:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mæja McFabulous

Höfundur

Mæja Bet Jakobsdóttir
Mæja Bet Jakobsdóttir

Ég er bara krakkakjáni í fullorðins líkama.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • martinhearty
  • martinhearty
  • 800px-Trollstigen Norway 2006
  • 800px-Trollstigen Norway 2006
  • Myndir 089

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband