Gamlar færslur III - Sælla minninga & Asetonískir handakrikar

Endurteknar, kjánalegar sögur af sjálfri mér eru allt sem ég hef að segja í dag;

 

Sælla Minninga


Ég stend, á berum bossanum, fyrir framan spegilinn á baðinu og mér er starsýnt á það sem við mér blasir. "Fimm ár" tauta ég, í vanþóknun og vantrú, rétt í því sem ég teigi fram vísifingur og strýk honum eftir ímyndaðri kjálkalínu á speglinum. "Þessi íðilfagra snoppa er allt of spegilslétt til að þessi tölfræði almanaksins geti mögulega verið rétt." Ég flissa þegar ég tauta þetta undir handakrikann, gríp svo hnefafylli af appelsínuhúð, neðan við sístækkandi bossann, og hristi duglega áður en ég dembi mér ofan í allt of heitt baðið.

Fimm ár finnst mér gífurlegur tími, þó er ekki nóg með að þessi fimm ár frá útskrift hafi liðið á ljóshraða heldur öll þau níu frá því að ég fyrst mætti í menntaskólann. Mér finnst það ekki ólíkleg tilhugsun að áður en ég verð búin að snúa mér við verði ég í sömu sporum og skemmtilega frúin sem flutti ræðu tuttugu og fimm ára júbilanta 16. júní. Á meðan ég hlustaði á hana rifja það upp hvernig hún mundi menntaskólann fór velti ég því fyrir mér hvernig menntaskólinn man okkur. Hvaða atvik eru það sem samferðafólkið man? Mér þykir forvitnilegt að velta því fyrir mér og eins þótti mér sérstaklega gaman að heyra mismunandi punkta frá ólíku fólki á þessum stutta tíma sem við áttum til endurfunda.

Eins og gefur að skilja var vinsælt að rifja það upp þegar ég, á harðahlaupum, missti niður um mig súmó-bleyjuna þegar við dimmiteruðum. Að sjálfsögðu flæktist þá frenjan vel fyrir fótum mér með þeim afleyðingum að ég féll kylliflöt og steinrotuð í göngugötuna á Akureyri, og tókst mér í leiðinni ekki aðeins að taka með mér heilann rekka af ferðatöskum, sem þar voru til sýnis, heldur líka að beygla og bráka vel á mér olnbogann. Skemmtilegt þótti að segja frá því í fréttatíma það kvöldið að súmóglímukappi hafi rotast í miðbæ Akureyrar. Þá er mér minnistætt eftir þetta þegar húsfrúin dásamlega frá Steinnesi kom og sauð okkur stöllunum egg og endaði svo á að þurfa að mata mig þar sem ég hef litla hæfni til slíkra verka með vinstri hendi.

Annað atvik, öllu ófrægara, var sagan af naglalakkeyðinum mínum í 1. bekk - hún er einstaklega heimskuleg. Hún barst þó oftast í tal núna þar sem frægasta atvik mitt um þessa helgi var kannski ekki mjög ósvipað. En það er skemmst að segja frá því að mér þótti einkennilegt þegar ég vaknaði eftir strembna óvissuferðina að ég skyldi æla sápukúlum. En svo kom á daginn að ég hafði, í misgripum, tekið glas af uppþvottalegi og tæmt úr því í skoltinn á mér. Svo það sé á hreinu - þá voru glösin hlið við hlið og alveg örugglega eins á litinn.

Það sem mér fannst þó flestir hafa hvað mest yndi af að rifja upp var fastur liður úr mötuneytinu. Nú er ég ekki viss hversu mikið fólk almennt veit um mig, en ég hef þó í gegnum tíðina, stöku sinnum, gerst sök af matvendni. Hér áður og fyrr þótti mér fátt verra en sósa, og hvað þá svona pottréttasósa prýdd alls konar grasi og viðbjóði. Þetta var þó vinsælt hjá þeim í mötuneytinu og var það ósjaldan sem okkur var boðið upp á gúllas í einmitt svona sósu með kartöflumús. Eins mikið og ég reyndi að láta lítið fyrir vanþóknun minni fara varð tækni mín við át á þessu þó fljótt mönnum kunnug og kom víst æði vel upp um sérvisku mína. Alltaf skyldi ég taka með mér auka vatnsglas og heilan regnskóg af bréfþurrkum. Kjötbitana veiddi ég svo upp einn af öðrum, skolaði þá í auka vatninu og þurrkaði af með bréfi. Ég sum sé át kjötið ískalt, vatnsmaukað og með trefjatæjum úr servíettunni. Þessi tækni var þó sjaldnar notuð þegar ég komst yfir símanúmerið hjá Greifanum.

En það er nú langt liðið frá þessum minningum, ég ætla þó ekki að lofa bót og betrun, en lengi má vona. Og á þetta jafnt við um bloggleti mína sem og sérvisku og seinheppni.

 

Fyrir þá sem ekki kannast við söguna af naglalakkeyðinum þá læt ég fljóta með aðra gamla færslu þar sem hún kom fyrir;

 

Asetonískir handakrikar


Þegar ég vaknaði í morgun vissi ég að ég færi ekki fram úr rúminu nema ég velti mér upp úr einhverju sem hefur komið mér til að skella upp úr í gegnum tíðina. Þetta var snúið verk þar sem ég er einstaklega þröngsýn manneskja, með háþróaða, vandláta og fágaða kímnigáfu og ekki þekkt fyrir það að hníga niður úr hlátri vegna einhverra smámuna. Ég lagði hugann í pollinn (sem kattarmjónan hafði útbúið á koddanum mínum með að reka bossann í vatnsglas í gluggakistunni) og fór að velta mér upp úr einhverju sem mér finnst fyndið. Ég fór að hugsa um einn morgunn síðan ég var í 1. bekk í menntaskóla – hvað ég hafði bitið það í mig að vinna bug á morgunillskunni og láta ekkert raska ró minni – þó það væri ekki nema þennan eina morgunn.

klukkuviðundur mitt öskraði þar til blóðhlaupnar glyrnur mínar opnuðust til að slátra þessari tussu, herbergisfélaginn lá steinsofandi í næsta rúmi og ég, elskuleg að venju, kunni ekki við að kveikja ljósið svo ég reyndi að græja mig aðeins í myrkrinu. Eftir að hafa nánast hengt mig við að koma mér í brjóstahaldarann og nær kæft mig við að hneppa buxunum mínum teygði ég mig upp í hillu til að sletta á mig smá svitarolloni, enn svefnblind og utangátta kippti ég mér lítið upp við fnykinn sem gaus upp þegar ég slengdi vænni gusu í handakrika mína. Það var ekki fyrr en ég fann vota strauma leka niður með síðum mínum sem ég áttaði mig á því að ég hafði gripið í naglalakkeyðinn í stað svitabrúsans.

Sótsvört af illsku og angandi af eiturgufum mætti ég í skólann stuttu seinna, staðráðin í að láta á engu bera og ljóma af tilbúinni kæti. Þegar ég svo þvældist fyrir sjálfri mér í efstu tröppunni, með þeim grátkómísku afleiðingum að ég skoppaði niður allar tröppurnar og inn í miðjan hóp myndarlegra 4bekkinga , stóð ég upp, vel rjóð og sælleg að sjálfsögðu, og gekk rakleiðis inn í stofu. Ég hafði þó enn ekki urrað!

Síðdegis, þegar skóla lauk var brosið enn á sínum stað. Þar sem ég arkaði á mínum kvenlega hálendishraða með 70 cm reglustrikuna mína gnæfandi upp úr skólatöskunni fannst mér dagurinn hafa heppnast alveg ágætlega. Það var ekki fyrr en ég leit upp og sá að fólk lá í hrönnum allt í kringum mig grenjandi úr hlátri að mér varð litið aftur fyrir mig til að komast að þeirri viðbjóðslegu staðreynd að ég hafði snarað einn gullfallegan 4bekking með reglustrikunni. Aumingja maðurinn hafði flækt reim utan um spjótið sem stóð upp úr töskunni og var búinn að dragast á eftir mér út alla ganga án þess að ná sambandi við þennan glaðhlakkalega geðsjúkling sem klárlega var með hugann einhversstaðar í sveitum landsins. Ég hélt mér væri allri lokið.

En hvað um það, upprifjun mín á þessum morgni var nóg til að ég drattaðist á lappir...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hver var þessi heppni 4 bekkingur sem lenti í þessum hremmingum?? ég get enn hlegið af þessu með asitonið:):) sorry mér finnst það alltaf jafn findið

Inga Birna 10.10.2008 kl. 11:38

2 Smámynd: Mæja Bet Jakobsdóttir

Ég veit ekki hver hann er, það er spurning um að leggjast yfir gamla Carminu því ég á aldrei eftir að gleyma andlitinu að eymingjanum...

Mæja Bet Jakobsdóttir, 10.10.2008 kl. 11:52

3 identicon

hehe vá hvað ég get alltaf hlegið að þessu, grenjaði úr mér augun af hlátri hérna :o)

Hugborg 20.10.2008 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mæja McFabulous

Höfundur

Mæja Bet Jakobsdóttir
Mæja Bet Jakobsdóttir

Ég er bara krakkakjáni í fullorðins líkama.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • martinhearty
  • martinhearty
  • 800px-Trollstigen Norway 2006
  • 800px-Trollstigen Norway 2006
  • Myndir 089

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband